You must remember this , A kiss is still a kiss , A sigh is just a sigh, The fundamental things apply, As time goes by

19.04.2007 14:12:33 / Astrun

Gleðilegt sumar...

...Það er samt ekki alveg komið sumar í mínum heimi, það styttist og ég er sko  alveg tilbúin fyrir sumar og sól.  Veit ekki hvort litla (herbergis)íbúðin mín bíður þess bætur að það fer að nálgast rigerðarskil og próf.  Það er því sennilega kostur að prófum loknum get ég bara pakkað öllu því sem inní henni er niður. Skrúbbað veggi, skúrað gólf,  skellt í lás og flogið heim í fjörðinn fagra þar sem ég ætla vera í sumar.  Fuglasöngurinn er bara ekki sá sami í borg og í bæ. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 22:57:44 / Astrun

Að heiman úr hreti köldu hélt ég í sumarfrí...

Ég gleymdi mér aðeins áðan og fór að syngja með útvarpinu.  Örstuttu seinna var eins og sparkað væri í gólfið á hæðinni fyrir ofan þrisvar sinnum.  Veit ekki hvort þetta hafi verið ábending frá nágrannanum um að söngurinn mætti missa sín.  Framvegis syng ég bara hljóði hér heima.

 Annars er bara hversdagsleikinn ansi venjulegur og fátt að segja.   Yndislegt að skreppa vestur, fjörðurinn fagri að sjálfsögðu bestur í hemi.  Nú er bara rólegheit og lærerí framundan, enda fyrsta prófið eftir viku. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 21:10:22 / Astrun

Ég elska stuð og helgarfrí...

Það er komið sunnudagskvöld og ég er ekki búin að læra nærri því allt sem ég ætlaði að klára í gær.  Búið að vera spes dagur án þess að ég hafi gert nokkuð. Róleg og fín helgi að líða, en ég bara nenni engu.  Næ þessu fyrir miðnætti.  Þorrablótið og papaballið á síðustu helgi var frábært, frábærlega heppnað djamm.  Enda var ég bæði stirð og haltrandi fram í miðja viku eftir tveggja tíma papaball.  Reyndar hætti ekkert að vera gaman eftir helgina.  Sunnudagsteik, sem var eðal, út að borða, bíó, dekur.  Svo ég ákvað bara að stytta næstu skóla-og vinnuviku aðeins, vera smá kærulaus.  Konan, sem ég fékk nefið og skapið frá, er að verða fimmtug á Valentínusardag.  Er að spá í fara vestur og halda upp á daginn með henni mömmu minni.  Þar sem þessi helgi var svona róleg, er planið að sú næsta verði það ekki.  Ætla ásamt fjölskyldunni á þorrablót í firðinum fagra.  Verður gaman að hitta fjölskylduna.  Svo ætla ég að taka mig alveg svakalega á, verða ofur-námskona.  En það er nú ekki fyrr en eftir viku. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 14:17:24 / Astrun

Fallerí, fallera....

Heima hjá mér var alltaf elduð pítsa á laugardögum.  Svo settist fjölskyldan inní stofu og horfði á strandverði og spaugstofuna.  Um hádegi á laugardögum var komið í mig góð og notalega tilhlökkun fyrir góðum degi.  Þetta var áður en ég sá skemmtunina í því að eyða kvöldinu í djamm.  Svipuð tilfinning og kom nokkrum árum seinna.  Þegar vinkona mín var ein heima, og við hittumst hjá henni, toppurinn var að panta mat og fá að vera einar allt kvöldið. Helst ef það var brjálað veður, ennþá sá ég ekki hvað gat verið gaman við að drekka áfengi og fara út að skemmta sér.  Enda var varla hægt að finna fanatískara barn, sem einnig óttaðist allt.  Núna aðeins fleiri árum seinna, finn ég ennþá þessa tilfinningu.   Nema núna sit ég heima hjá mér, í herbergisíbúðinni minni.  Dálítið drasl svona, en verð enga stund að redda því. Núna veit ég hvað það er gaman að hafa eitthvað gott og fallegt djammplan fyrir kvöldið.  Ég einmitt vaknaði með þessa tilfinningu í morgun.  Er búin að hringja ansi oft í fjölskyldumeðlimi mína og deila gleði minni með þeim.  Svo oft að engin þeirra getur svarað í símann í dag vegna anna. Ég er samt búin að prufa hringja í þá alla. 

En allvega nema bara hvað.  Ætla líka að tala aðeins meira um fanatíska barnið með þráhyggjur.  Ég hef á mínum 23 árum tekið tímabil í að vera hrædd við allt og haft áhyggjur af öllu. Ég hef aðsjálfsögðu verið hrædd við nánast alla menn í einkennisbúningum eins og mörg börn.  Það var áður en ég lærði að meta menn í einkennisbúningum. Svo var ég hrædd við bæði kýr og hunda, sem kom sér illa því ég var í sveit þegar það tímabil stóð yfir.  Ég hafði alltaf áhyggjur af því að foreldrar mínir fengu skyndilegt minnisleysi, og gleymdu að læsa ölllum hurðum og slökkva á öllum rafmagnstækjum.  En þær áhyggjur fékk ég reyndar frá bróður mínum  Ég var að verða nokkuð gömul þegar ég fór að þora vera ein heima á nóttunni og tala nú ekki um að gista hjá einhverjum öðrum en Möggu frænku.  Þetta var stórt vandamál og hafði ég nokkur böll af bæði foreldum mínum og bróður. Auk þess hafði ég endalausar áhyggjur af því að ég væri komin með þessa veikina eða hina.  Hver kannast ekki við spurninguna, !"heldurðu að það sé eitthvað alvarlegt?" frá okkur systkinunum.  En ég veit ekki betur en ég sé núna vaxin upp úr þessu og farið að þykja þetta nokkuð fyndið.  En það sama er ekki að segja um fjölskylduna mína, þau þurfa nokkur ár í viðbót.

                Er ekki frá því að klukkan sé að verða: má byrja hafa sig til núna. Er búin að bíða eftir því síðan ég vaknaði.


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 14:48:55 / Astrun

Það er svo geggjað að geta hneggjað...

Hmm, afhverju kann ég ekki rétta fingrasetningu?? Ég var spurð að því og ég bara hreinlega veit ekki svarið.  Fannst reyndar fátt eins leiðinlegt og tilgangslaust og ritvinnsla í menntaskóla. Var reyndar líka svo "óheppin" að fingraför á röngum stað á ritvinnludisknum skemmdu hann.  Hef bara aldrei hlotið nokkurn skaða af því að hafa ekki lært rétta fingrasetningu.  Það hefur ekki haft áhrif á skólagöngu mína né nokkuð annað.  Í fyrsta skipti á ævinni tók einhver eftir þessi. Reyndar fannst mér smíði líka algjörlega tilgangslaust, en það er önnur saga.  Afhverju í ósköpunum er verið að láta nemendur taka slík fög.  Sennilega eingöngu til að ná nægum einingum.  Ýmislegt annað sem er nauðsynlegra sem grunnskóla- og menntaskólanemendur ættu að læra.  Réttlæti, siðferði, virðing og að það eru kjánar sem eru snobbaðir. Mikilvægt að leggja fyrir þó að það sé ekki augljóst á þessum tíma.  Hvernig á ekki að taka þátt í lífsgæðakapphlaupinu.  Líf 15 ára unglings  er ekki ónýtt þó hann  nái ekki samræmdu prófunum.  Ég t.d. er algjörlega vonlaus í svo mörgum fögum.  Fólk velur þá bara það sem það  hefur áhuga á að læra, ef það hefur áhuga að læra.  Ef ekki þá ekki.   

Seinna meir kemur svo í ljós hvað skiptir máli.  Það er ekki hvort finrasetningin er rétt, hvort vinsælasta stelpan vildi leika við þig eða hversu margir strákar voru skotnir í þér.  Ég verð ekki hamingjusöm í ellinni af því að mér var boðið í afmælið hjá "Siggu" eða hélt ég væri betri en "Jón".  Ég held að fullt af fólki sé ýmist leiðinlegt eða merkilegt með sig, líklega er fullt af fólki sem hugsar það sama um mig.  Ég verð ekki hamingjusamari í ellinni með því að þykjast ekki vera það.  Það eru það allir stundum.  Ég hef líka komist að því að ég hafði rangt fyrir mér oft.  Það er engin meining á bak við þetta og ekkert orsakar þetta blaður, nema að ég er að reyna láta tímann líða hraðar.  Svo líka að færlsan hér á undan var leiðinleg.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 22:44:10 / Astrun

Allavegana nema bara hvað...

Til að byrja með: ég er svo rosalega hrifin af skóútsölum.  Hafði ekkert betra að gera svo ég fór í smá búðarrölt í dag.  Ég á tvö ný skópör:D  Svo fæ ég hraðari hjartslátt og fiðrildi í magann við að fara inn í búðir eins og Blómaval og Garðheima. Svo mikið af litum og svo margt manni langar í eða gefur manni góðar hugmyndir.  Nú er "herbergis"íbúðin mín líka svaka næs og kósý.  Fleira  merkilegt átti sér stað því ég notaði eggjasuðutækið mitt, það var gjöf, í fyrsta skipti. Ótrulegt en satt það virkaði.

Svo: Fögin mín eru bara nokkuð fín í þetta skiptið. Er meira að segja að spá í að lesa fyrir tíma.  Ég er að vinna á leikskóla með skólanum.  Hef ekki verið sú skynsamasta í að nota tímann sem ég hef, til að læra, til að læra.  En núna hef ég ekki eins mikinn tíma til að gera ekkert þegar ég á að vera gera eitthvað annað.  En ég held að það verði til þess að ég hafi miklu meiri tíma en ég hef haft. Jájá þetta skýrist. 

Að lokum: Ég er að verða svo þreytt að þessum kulda.  Kona sem ég þekki skrapp til heitra útlanda, ég öfunda hana.  Mig langar líka til að fara eitthvað útí sveit, eða reyndar helst í ákveðna sveit.  Bara til að gera ekkert og borða eitthvað gott. Já það helst í hendur.  Mig langar svo mikið í súkklaði núna að ég finn lyktina af "jóla"súkkulaði. 

                     Það er ekkert lítið sem ég get blaðrað...


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 20:11:16 / Astrun

Með hækkandi sól...

Það kemur alltaf smá tómleiki í mig þegar jólahátíðin er að líða.  Desember fer í undirbúning og að koma sér í jólastuðið. Hjá mér eins og fleirum fór desember í próflestur, hafa kósý þegar tækifæri gafst og telja dagana fram að jólafríi.  Jólafríið er búið að vera mjög ljúft, þó að ég sé búin að gera lítið annað en að slappa af í sófanum hjá foreldrum mínum.  Byrja reyndar það seint í skólanum í janúar að ég get aðeins teygt fríið. 

Eins og flestir aðrir ætla ég að sjálfsögðu að gera eitt og annað nýtt og bætandi á nýju ári.  Síðasta ár var dálítið spes að mörgu leyti, ég er búin að vera dálítill sveimhugi og frekar kærulaus hvað varðar skólann t.d. En þá hef ég bara eitthvað til að bæta úr.  Ég strengdi engin áramótaheit, en er komin með nokkur plön í huganum.  Það er samt ágætt að byrja á raunverulegum markmiðum og fara ekki of langt fram úr sjálfri mér, því þá verður ekki neitt úr neinu.  Ég er líka best með hækkandi sól, líkt og ég er best á háum hælum;) Kannski man ég betur eftir þessu af því að ég asnast til að skrifa þetta hér.  Annars kemur þetta bara allt í ljós, kannski verð ég orðin húsmóðir á Kópaskeri eða farandverkakona í Frakklandi í lok ársins 2007.   Allavega, eigið góða daga síðustu viku jóla.               Ástrún


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 13:06:12 / Astrun

og rembast örlítið meira....

Ég bara hélt að þessi dagur ætlaði aldrei að láta sjá sig.  Hefði verið til í að vera í prófinu í morgun því þá væri það búið núna. Eftir 4 klukkutíma verður þessari pirrandi prófatíð lokið hjá mér.  En það er samt þannig að um leið og jólafríið skellur á kemur aldrei þessi ofboðslega gleði sem maður reiknaði með og hugsaði um síðustu vikurnar.  Auðvitað er það alveg frábært að vera komin í jólafrí en oft er eitthvað annað stress sem skýtur upp kollinum.  En svo koma jólin sjálf og þá kemur gleðin og hátíðarskapið mitt.  Í kvöld ætla ég að halda upp á próflokin með gómsætum mat, sem kallast -afgangar úr ískápnum því ég þarf að tæma hann áður en ég fer vestur-.  Það er samt alveg eitt og annað gott eftir í honum.  Svo ætla ég að kveikja á kertum, leggjast upp í sófa og horfa á sjónvarpið.  Þetta allt ætla ég að gera án þess að hafa svakalegt samviskubit yfir því að vera ekki að læra eða yfir því að vera að eyða tímanum í vitleysu.  Nú má ég bara eyða tíma mínum í vitleysu það sem eftir er ársins og rúmlega það.  Ok, megið senda mér góða strauma til 16:30:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 11:38:46 / Astrun

Það er líklegt að bannað sé leggja þar sem bannað er að leggja af góðri ástæðu, ekki satt...

Undafarna daga hef ýmislegt skrítið átt sér stað.  Undarlegir hlutir sem ég bara get ekki útskýrt.  Ég fann jakkan minn á handklæða-snaganum inn á baðherbergi. Ég fór  að sofa með höfuðuð höfuðmegin, vaknað 6 tímum seinna með höfuðið fótamegin. Rembaðist við að reyna opna viltausan bíl, sá var grænn ekki blár. Setti trópí út á ceeriosið mitt. Ég verð allltaf dálítið spes þegar ég verð þreytt og stressuð.  En þetta er nú samt allt að koma. Er nú samt komin í hellings-jólaskap.  Eftir nákvæmlega viku ætla ég að sofa lengi, vakna seint, kaupa jólagjafir, hlusta á jólalög, <fara á ball, drekka bara brennivín, kýla e-n á kjaftinn> æi það fattar þetta örugglega ekki neinn.  Allavega nema bara hvað, þá er ég að fara í próf eftir tvo tíma og er nokkuð kærulaus svona. Eginlega bara nenni þessu ekki, eiginlega bara langar í kringluna.  En engin sagði að það ætti alltaf að vera stuð.  Gæti sagt ykkur eina af dæmisögum móður minnar sem passar við það.  Þær eru svo fyndnar að þær koma mér alltaf í gott skap.  En ætla ekkert að vera að því.  Ég ætla bara að hætta skrifa núna, já held að það sé bara best. Bara fara að leggja mig kannski, bara eitt augnablik.  

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 09:49:17 / Astrun

Hey-lah, Hey-lah, Shey-lah, Shilla-willa, Shilla-willa Oompah, Oompah

Vinkonur mínar, svokallaðar heilasellur, hafa greinilega látið sér hverfa eða hreinlega dáið úr leiðindum.  Veit ekki hvernig ég fer að því að ná sambandi við þessa einu heilasellu sem er eftir til að fá hana til að sýna smá lit og taka þátt í þessum lærdómi með mér... Ég sem við eðlilegar aðstæður er svo klár;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 12:21:30 / Astrun

Á morgun segir sá lati(sú lata)

Besta leiðin til að losna við stressið og kvíðann sem liggur í loftinu þessa dagana er að hugsa ekki um allt það sem þarf að gera á svo stuttum tíma áður en blessuð prófin skella á. En með því að ýta öllum áhyggjum yfir á morgundaginn, og ætla að takast á við þær þá verður til þess að ég geri ekki neitt af neinu.  Dagarnir líða, stressið eykst og þarf að gera-listinn verður lengri og lengri.  Bráðum fer ég að hætta þessu hangsi og þessari leti.  En málið er bara að um leið og ég geri það þá er ekki aftur snúið og ekki stoppað fyrr en nokkrum dögum fyrir jól.  Þá er svo gott að vita að það er ekki fyrr en á morgun sem ég ætla í lærigírinn, í dag ætla ég bara að vera alveg róleg.

Það verður svo frábært að komast í jólafrí.  Snjórinn í Reykjavík þessa dagana setur smá jólastemmningu í loftið.  Ég afber tæplega að hlusta á jólalög eftir rúma viku því því þá hverfur allur lærdóms-sjálfsagi út í bláinn. Ég er  ekki frá því að ég sé komin með smá Ísafjarðar-Króks-fjölskylduþrá.  Á morgun verð ég dugleg, svo að jólin komi sem fyrst.

Seinna sama dag:

Ég skipulagði tíma minn hrikalega illa í dag , ég búin að vera bíða eftir að klukkan verði þetta eða hitt í allan dag.  Nema bara hvað að í hangsinu mínu fór ég að skoða drög að stundatöflu vorönn 2007.  Er dálítið svekkt og sorry yfir henni. Endalausir árekstrar á aðal-og aukagreinunum mínum.  Lýtur út fyrir að ég geti bara tekið fög úr annarri þeirra.  En mér finnst bæði betra. 

 Nú væri góður tími til að fara í sumarbústað lengst út í buskann, ekkert net, ekkert símasamband, ekkert endilega rafmagn. Eintóm afslöppun.  Verð nú bara afslöppuð við tilhugsunina. Úff seinna.  Núna ætla ég að halda áfram að stressast, taka þátt í lífsgæða-kapphlaupinu, fara og argast  í umferðinni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 14:45:36 / Astrun

Ekta mánudagur...

K:,  (Eins og ég heyrði þetta.)Þetta er bla bla bla, og greinir frá bla bla, og sýnir því að bla bla er bla bla bla. Bla bla gæti því verið bla bla bla.

Á.J. hugsar: Ætli það séu allir hérna að hlusta nema ég. Heyrðu já ég þarf að kaupa mjólk á eftir.

K:,  (Eins og ég heyrði þetta.)Bla bla sýnir þá að heildarmyndin er bla. Bla bla er sjálfgefin bla bla bla bla.

Á.J. hugsar: Hvað vantar mig í Ikea. Best að skrifa lista. (Fer í word og byrjar að skrifa lista.)

 K:, (Eins og ég heyrði þetta.) Bla bla skiptir miku máli og nauðsynlegt að geta gert grein fyrir því.

Á.J. hugsar: Jæja, það hefði nú kannski verið gott að hlusta. Kannski kemur fyrirlesturinn inn á netið. Æ þetta reddast.

K:,  (Eins og ég heyrði þetta.) Bla bla og þá þarf að bla bla bla.

Á.J. hugsar: Ætti ég að kaupa stígvélin sem ég sá í Kringlunni. Nei bíð með það, geri það frekar ef ég stend mig vel í prófunum. Humm, eru einhverjar líkur á því. Jújú þetta reddast.


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 14:01:00 / Astrun

Verð víst að lýsa þessu með orðum...

Ég get ekki sett inn myndina sem átti að koma hérna í gær svo ég tók hana bara út og þarf að skrifa smá um hana. Þetta var reyndar alveg einstök mynd.  Hún var tekinn seinni partinn á laugardag í Mjóafirði.  Var einmitt þar um helgina ásamt fleirum  í afmæli.  Frábær helgi. Svona kökuveisla hefur ekki sést held ég í nokkra áratugi. Á laugardeginum var þungskýjað og rigning á köflum en mjög fallegt veður.  Seinnipartinn kom allt í einu smá sólargeisli í gegnum skýjin í fjarðarbotninum.  Bara í stuttan tíma en rosalega fallegt.  Flestir sem voru með myndavél fóru út og tóku myndir og var það sem sagt þessi mynd sem átti að vera hérna.  Kom svo heim í gær, aflsöppuð, búin að borða fyrir mánuðinn, með verk  í hverjum einasta bros-(hlátur)vöðva.


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 14:30:48 / Astrun

Ó, pabbi komdu heim um jólin.....

Það er þannig að ákveðin stemming hellist yfir mig þegar ég heyri e-ð gamalt lag eða sé gamlar myndir. Mér finnst mjög gaman að þekkja gamlar myndir og leikara og sísí blabla.  Þess vegna keypti ég Casablanca um daginn, því það er svo merkileg og sígild mynd er mér sagt.  Ég set hana í tölvuna, kveiki á kertum og voða rómó hjá mér.  Ég var búin að ákveða hvað mér þætti hún frábær og hvað þetta yrði falleg minning um þessi fyrstu kynni okkar  áður myndin var byrjuð.  Skyndilega hrekk ég upp og veit ekkert hvað er að gerast í myndinni. Svona fór rómantíska Casablanca-kvöldið mitt.  En það er bara þannig að svona myndir á maður að horfa á í heild, svo ég þarf að byrja á byrjun næst. 

Svo er bara skólinn og skólinn, vikan var  reyndar búin í huganum á mér strax í gær, svo þetta verður meira svona fiðrildi en fiskur.  Ég er nefnilega að fara vestur um næstu helgi.  Mér finnst að Háskóli Íslands ætti að taka tillit til þess og stytta þessa kennsluviku um svona fimm daga.  Annað sem gerði mig dálítið svekkta.  Það komst bleyta í töskuna mína, ég þurfti að henda svona 30 blaðsíðum af glósum.  Auk þess þarf ég að kaupa tvær bækur aftur. Það kom sér því vel núna að ég er ekki mjög metnaðarfull.  Því þá hefði það verið þvílík  vinna að bæta þetta tjón.  Ef ég væri ein af þeim sem áherslutússa merkilega hluti í kennslubókunum, eða glósa mjög reglulega og skipulega þá væri það allt ónýtt líka.  Foreldrar mínir hafa haldið því fram að Ástrún óskynsama myndi aldrei koma mér til góðs. En það kom að því.  Fyrir utan að hún er líka svo miklu skemmtilegri en þessi skynsama.  

Jæja ætla að  fara panta mér flugfar svo ég komist heim í jólafrí.  Finnst samt eins og það sé eitthvað mikilvægt sem gerist áður en það kemur að því fríi.   Eitthvað sem hefur með ónýtu glósurnar og bækurnar að gera, það hlýtur þá að rifjast upp ef ekki þá ekki. 

           


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7